|
KerfisuppbyggingNetskólinn er íslenskt námsumhverfi á Netinu sem ætlað er að taka til sem flestra þátta sem máli skipta í námi á neti. Um er að ræða öflugt vefumsjónarkerfi myndað af eftirfarandi meginþáttum:
Í Netskólanum geta kennarar útbúið vefbundin námskeið, annað hvort til að kenna eingöngu á netinu í fjarnámi, eða til að nota sem stuðning við staðbundið nám. Netskólinn er íslensk hönnun og hefur frá upphafi verið mikil áhersla lögð á að hanna námsumhverfið á þann hátt að sem þægilegast sé að nota það, bæði fyrir kennara og nemendur. Einfalt er að setja inn efni með því að flytja inn skrár úr eigin tölvu til miðlara Netskólans. Kerfinu fylgir einnig öflugt vefbundið ritvinnsluforrit sem gerir það að verkum að uppsetning efnis er mjög einföld. Í ritvinnsluforritinu er tenging við mynda- og skráasafn notenda svo auðvelt er að setja inn myndir, myndbönd eða tengla á skjöl sem notendur hafa flutt á netið. Einnig er boðið upp á yfirferð á textanum á íslensku. Stofnanir geta einnig sótt um að stofna sinn eigin Netskóla þar sem hægt er að halda námskeið fyrir notendur stofnunarinnar, bjóða upp á netkynningar, skrifa fréttir og margt fleira. ![]() Tengt efni Sækja Internet Explorer 6 |
Sækja Internet Explorer 6 Áskrift að fréttum Skráning á póstlista Leit Gleymt aðgangsorð |