Sjálfsmat skóla
Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að hver grunnskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs. Skal það gert með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á. Markmið þessa mats er að:
• gera starfsfólki skóla auðveldara að vinna að og meta markmið skólans. • draga fram sterkar og veikar hliðar skólans • veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, foreldra og nemenda • tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnamskrár grunnskóla • auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum • tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum
Grunnskóli Reyðarfjarðar birtir opinberlega upplýsingar um sjálfsmat sitt með því að setja inn upplýsingar á heimasíðuna.
Foreldrakönnun 2008.pdf
9.6.2009 Þrúður Aðalbjörg Gísladóttir |