| | Grænfáninn 28. maí 2009 tók Grunnskóli Reyðarfjarðar á móti Grænfánanum. Grænfáninn er alþjóðlegt verkefni sem Landvernd er aðili að og er markmið þess að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisvitund í skólum. Grunnskóli Reyðarfjarðar varð „skóli á grænni grein“ árið 2005 og hefur umhverfisnefndin unnið mikið starf til að gera skólann umhverfisvænni og kenna starfsfólki og nemendum umgengni og vinnubrögð sem samræmast því. Í umhverfisnefnd eru Alma Sigurbjörndsóttir, Guðrún Rúnarsdóttir, Sigríður Herdís Pálsdóttir og Villy Henriksen. Í vetur hafa fulltrúar nemenda starfað með þeim og heitir sú nefnd Stóra Grænfánanefndin. Í henni eru Rósa Margrét Ólafsdóttir úr 10. bekk, Hjörtur Elí Steindórsson úr 9. bekk, Fanney Stefánsdóttir og Kristinn Þór Gíslason úr 7. bekk, Hjördís Þöll Jóhannsdóttir og Yngvar Orri Guðmundsson úr 6. bekk, Sigfinnur Þór Björgvinsson og Sólrún Ágústsdóttir úr 5. bekk og þeir Marteinn Már Sverrisson og Pálmi Þór Jónasson úr 4. bekk. Þeir skólar sem vinna að því að fá Grænfánann og verða skólar á grænni grein þurfa að stíga sjö umhverfisskref áður en þeim hlotnast Grænfáninn til tveggja ára og þurfa að halda áfram að vinna ötult og gott starf í umhverfismálum til að halda honum. Umhverfissáttmáli Grunnskóli Reyðarfjarðar.doc
8.6.2009 Þrúður Aðalbjörg Gísladóttir |