|
Notendaupplýsingar
|
Ólafur Ketill Guðrúnarson
14 ára.
Murcia Spánn
|
Um mig Ég heiti Ólafur Ketill Guðrúnarson, ég er 9 ára og ég á systir sem heitir Perla Líf og er 6 ára. Við eigum heima á Spáni með mömmu okkar en pabbi býr á Íslandi. Ég æfi sund og tennis, en mér finnst líka gaman að spila fótbolta og körfubolta. Mér finnst gaman að leika mér með vinum mínum, fara út að hjóla, leika í Play Station eða PSP, lesa og fara í skólann. |
|
Afmælisdagar
|
27.2.1974
Guðrún Helga
14.3.1997
Stefán Orri Arnarsson
22.3.1997
Ólafur Ketill Guðrúnarson
6.5.2000
Inga
15.6.1997
Andrea
28.6.1997
Róbert
4.7.1962
Þurý
7.7.2000
Perla Líf
9.10.1981
Simmi
3.12.1960
Steinar
|
|
Skráðu afmælisdaginn þinn
|
|
Hvernig get ég???
|
Fengið svona flotta síðu?
Ef þú ert ekki skráð(ur) notandi í kerfinu getur þú stofnað þig sjálf(ur), það tekur ekki nema eina mínútu.
Smelltu hér til að skrá þig sem notanda. Eftir það getur þú
byrjað að búa til þína eigin síðu. Þú kemst inn á hana með því að velja Heimasíðan mín úr valmyndinni Mín síða
sem bætist við hliðina á tenglinum Aðalsíða.
|
|
| Bloggsvæði
|
Fermingin hennar Mª del Mar, Inés og Antonio José
28. maí 2007
Í gær fór ég í kirkju af því að Javier, Antonio José, Mª del Mar, Zaida, Cristina, Belén og Inés fermdust , þau eru bekkjasystkini mín. Stelpurnar fóru í flottan, hvítan kjól og strákarnir fóru í skipstjóraföt. Eftir kirkjuna fór ég heim til Mª del Mar og Antonio José og við lékum
okkur smá og ég sá nýja gsm símann
hennar Mª del Mar. Þegar við vorum búin að leika fórum við og aðrir
krakkar sem voru boðnir í Rincón Huertano, veitingastaður þar sem
fermingin var haldin. Þar var Adrián og Guillermo að bíða eftir okkur.
Þegar við vorum öll komin borðuðum við snakk, empanadillas, grjón og ís .
Eftir matinn fórum við að leika fótbolta í grasinu í Rincón huertano og
liðið mitt vann. Svo fórum við að borða nammi og við fengum
skopparakringlu, við vorum mjög lengi að leika með hana. Eftir hálftíma
dansaði Mª del Mar tvö lög, eitt með Shakira og eitt með Amaral. Við
lékum svolítið meira og svo fórum við heim til Mª del Mar og lékum
okkur úti með öðrum krökkum. Svo fór ég heim, fór í sturtu og fór að
sofa. Þetta var í gær. ÓLAFUR KETILL GUÐRÚNARSON
Skráð kl. 19:51 (GMT)
| Skrifa ummæli
Ummæli:
soldis fjola karlsdottir Skráð
29. maí 2007
Kynnir
7. maí 2007
Um daginn var hátíð í skólanum og ég og Maria del Mar vorum kynnar. 3 ára bekkur söng og dansaði lagið "Hesturinn minn", mér fannst það mjög skemmtilegt og fyndið. 4 ára bekkur söng nokkur lög til þess að leika sér en það heyrðist varla í þeim. 4 ára bekkur söng nokkur gæfulög til þess að velja lið í einhverjum leik. 1° bekkur sagði vísur um sögu Murciu, systir mín var þar og hún gerði það mjög vel. 2° bekkur var mjög fyndinn, þau voru með leikrit um "Tío Pencho". 3° bekkur sagði vísur um mat úr Murcia og söng lag líka um mat. Á meðan þurfti ég og Maria del Mar að skipta um föt til þess að syngja lagið með bekknum okkar. Þegar við skiptum um föt sagði hver og einn úr bekknum minum vísu sem hann bjó til, svo sungum við lagið "Paparajotes" (sem er eftirmatur sem er borðaður í Murcia). 5° bekkur sagði mjög langar vísur og á meðan var ég og Maria del Mar að skipta aftur um föt. 6° bekkur söng lag og talaði um um áhrífamikið fólk úr Murciu. Það endaði með að nokkrir dönsuðu Murcianskan dans. Það var það sem gerðist í hátíðinni. Kossar og knús. ÓLAFUR KETILL GUÐRÚNARSON
Skráð kl. 18:17 (GMT)
| Skrifa ummæli
Ummæli:
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Skráð
7. maí 2007
Það er margt búið að gerast
21. apríl 2007
Síðan ég bloggaði síðast er margt búið að gerast: það hefur komið páskafrí, ég hef farið í bíó... Um páskana var eiginlega alltaf rigning, þess vegna var ég eiginlega alla daga heima að leika í tölvunni, að lesa eða horfa á sjónvarpið. Ég borðaði páskaeggið á 2 dögum með smá hjálp(ég er oftast nokkrar vikur að borða það) frá Miguel og Mario. Daginn eftir fórum við í bíó að sjá myndina meet the Robinsons. Eftir nokkra daga fór ég til sjóntækjafræðings og það var sagt mér að ég sé nærsýnn. Efir 16 daga páskafrí byrjaði skólinn (ooooooooooooooooo). Fyrsti dagurinn var fínn af því að það var ekki mikill lærdómur. Á næsta dag fórum við að lita vegna þess að menningarvika er í næstu viku og mér fannst það mjög skrítið af því að venjulega erum við að læra. Á Miðvikudagskvöldið fór ég aftur til sjóntækjafræðings og ég valdi gleraugu á mig, ég valdi rauð gleraugu sem mér finnst mjög flott. Næsta dag fékk ég gleraugun mín og síndi Palomu, Fulgen og Miguel þau. Í dag klifti mamma mig vegna þess að ég er með mjög mikið hár. Í dag er laugardagur, þess vegna skrifa ég núna inn á síðuna mína. Kossar og knús, Ólafur Ketill Guðrúnarson
Skráð kl. 11:03 (GMT)
| Skrifa ummæli
Ummæli:
Dabba Skráð
2. maí 2007
Þórey Skráð
27. apríl 2007
Sóldis Fjóla Karlsdóttir Skráð
22. apríl 2007
Um mig
26. mars 2007
Ég heiti Ólafur Ketill Guðrúnarson og ég bý á Spáni sem er í Evrópu.
Borgin sem ég bý í heitir Murcia og þar búa um það bil 400.000 mans,
höfuðborgin á Spáni heitir Madrid. Ég hef búið 3 ár og 7 mánuði í
Murcia og ég hef búið á Sauðarkrók í 2 ár. Ég á eina systir sem heitir
Perla Líf. Ég fer í grunskóla sem er almeningskóli með Perlu Líf og er
líka inn á netskólanum. Ég er að búa mjög vel í Murcia þótt að það sé
heitt. Ég hef eignast marga vini hérna á Spáni, bestu vinir mínir heita
Adrián, Pedro Luis, Guillermo, Miguel, José María og Fernando.
Áhugamálin mín eru skák, fótbolti, tennis, lestur, sund og körfubolti.
Ólafur Ketill Guðrúnarson.
Skráð kl. 16:46 (GMT)
| Skrifa ummæli
Ummæli:
Sóldis Fjóla Karlsdóttir Skráð
27. mars 2007
Feðradagurinn.
19. mars 2007
Í dag er feðradagurin og líka San José, þess vegna eftir að við borðuðum morgunmat fórum við heim til José María (bróðir hans Fulgen). Ég, Perla, Laura, José og Miguel fórum í Cordillera (sem er íþróttamiðstöð). Þar lékum við í fótbolta og í tennis. Þegar við komum aftur heim til José var maturinn tilbúinn þannig að við borðuðum pasta með sósu og tómat. Eftir matinn lékum við í vegg(maður leikur svona:það á að sparka í fótbolta og hitta í vegg, þú mátt bara snerta boltann einu sinni og ef þú snertir boltan tvisvar eða hittir ekki í vegginn þrisvar þá tapar þú), fórum í tölvuna og borðuðum eftirrétt. Þegar ég var að fara með jarðarberjaskál(glerskál) full af jarðarberjum niður stigann þá datt ég næstum því og skálin splúndraðist í þúsund glerbrot. Ég skar mig með einum af glerbrotunum (og það kom fullt af blóði) og konan hans José (sem heitir Chiqui) setti joð á sárið ogi líka plástur . Þegar það var búið að setja eitthvað á sárið mitt þá fór Mario (sem er frændi hans Miguel) tefla á móti honum og Mario vann hann . Þetta er það sem gerðist heima hjá José. Kossar     og knús, ÓLAFUR KETILL.
Skráð kl. 20:49 (GMT)
| Skrifa ummæli
Ummæli:
Þórey Skráð
í dag kl. 10:29
soldis fjola karlsdottir Skráð
22. mars 2007
soldis fjola karlsdottir Skráð
20. mars 2007
Eldri blogg
18.3.2007 Skákmót 15.3.2007 Afmæli og læra 6.3.2007 Gaman í heimsókn 17.2.2007 Afmæli 12.2.2007 Heimsókn 8.2.2007 Veikur 29.1.2007 Nýtt ár. 21.11.2006 Skák 4.11.2006 Rigning 1.11.2006 HALLOWEEN
|
|
| Myndaalbúm |
alskonar
Það eru engar myndir í þessu albúmi
|
|
Á döfinni
|
|
Engin færsla á skrá
|
|
Gestabók
|
|
Skrifaðu í gestabókina
|
Færslur í gestabókinni
Þurý
Hæ Óli minn. Bara að kvitta í gestabókina um leið og ég skoða hvað þú ert búinn að skrifa skemmtilegt. Sé þig fljótlega. Knús Þurý
16. apríl 2007
soldis fjola karlsdottir
Hæ Ólafur, þetta er flott síða hjá þér. Endilega haltu áfram að skrifa sem mest inn á hana 22.mog ég vona að sem flestir skrifi í Gestabókina þína. Til hamingju með afmælið 22. mars og til hamingju aftur með síðuna. Sóldís amma.
22. mars 2007
Stefán Orri
Bestu kveðjur til þín Ólafur Ketill. Flott að heyra hvað gengur vel í skólanum og skákinni. Þinn vinur, Stefán Orri
20. mars 2007
Skoða allar færslur
| |
Skrifaðu í gestabókina
|
|