Innskráning
Hjálp
Notandanafn:
Aðgangsorð:
 Nýr notandi  
Bridgesamband Íslands



Bridgenámskeið
skráð 22.4.2008 (56 Myndir)

Fleiri albúm
Bridgehátíð 2010
Bridge online


 
Fréttasvæði
Ísland í fjórða sæti á Evrópumótinu
3.7.2010-Bridgefréttir
Íslenska karlalandsliðið í bridge náði frábærum árangri í Evrópumótinu, sem fram fór í 0stende í Belgíu, dagana 23. júní – 3. júlí. "Strákarnir okkar" unnu milliriðilinn sannfærandi og voru í fremstu röð alla keppnisdagana í úrslitum og höfnuðu að lokum í fjórða sæti eftir að hafa unnið Rússa 19-11 í lokaleik mótsins. Bridgetorg óskar öllum til hamingju sem að þessu stóðu og sérstaklega þó spilurunum sjálfum. Ekki má þó gleyma öðrum sem stóðu í eldlínunni, fyrirliða, þjálfara, aðstoðarfólki og stuðningsaðilum. Svona árangur er afurð samstillts átaks, samstöðu og þess liðsanda sem þarf til að brjóta múra.



Þessi góði árangur gefur nú liðinu rétt til að taka þátt í heimsmeistaramótinu að ári, 20 árum eftir heimsmeistaratitilinn eftirminnilega. Gleymum ekki að bridds er eina íþróttin þar sem Íslendingar hafa náð að verða heimsmeistarar og sagan getur vissulega endurtkekið sig. Til þess þarf þó öflugan stuðning, markvissan undirbúning og það sem meira er, að keppnisliðið finni fyrir áhuga og samstöðu þjóðar sinnar í víðasta skilningi – þeir eru „strákarnir okkar“ ekki síður en í öðrum íþróttagreinum þar sem Íslendingar eru í fremstu röð.


Ísland í fyrsta sæti
29.6.2010-Bridgefréttir
Íslenska landsliðið á Evrópumótinu í Ostende hefur nú unnið það afrek að sigra í undanúrslitariðli eftir að hafa leitt mótið frá upphafi. Helstu keppinautar þeirra, Ítalir töpuðu illa í síðasta leiknum gegn Króatíu sem þurftu á öllum mögulegum stigum að halda til að komast afram. Það gekk eftir en dugði þó ekki til. Íslendingar uppskáru samtals 358 og Ítalir, fast á eftir, hlutu 350 stig þrátt fyrir hrakfarir í síðasta leik.

Undankeppnin stóð í sjö daga og voru spilaðir 3 leikir daglega, samtals 7-8 klst. Mikla einbeitingu og úthald þarf til að ná slíkum árangri og augljóst að okkar menn hafa komið komið vel undirbúnir til leiks fyrir utan að vera í röð bestu spilara heims. Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu mótsins og að sjálfsögðu á vef Bridgesambands Íslands.


Evrópumótið í Ostende - staða
25.6.2010-Bridgefréttir
Með því að smella á tölustafina lengst til vinstri í töflunni má kalla fram upplýsingar um viðkomandi leik.



Fréttasafn
Til sölu á Amazon