Netfang:
Ég vil fá sendar fréttir í eftirfarandi flokkum: Tilkynningar
Sláðu textann á myndinni inn í reitinn
Leikir og fróðleikur
Nú standa yfir sýningar á leikritinu Græðgi eftir nemendur leiklistarvals Grunnskóla Reyðarfjarðar og Unni Sveinsdóttur leikstjóra. Hópurinn ber nafnið MIXTÚRA og hann skipa nemendur í 8. 9. og 10. bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar. Öflugir krakkar sem hér eru að setja upp frumsamið verk, unnið og þróað áfram með mikilli hópvinnu, samræðum og leikspuna. Svona vinna krefst mikils af þátttakendum og flestir hafa stigið langt út fyrir sinn þægindahring og gera hér á sviðinu hluti sem margir þeir eldri ættu erfitt með.
Leikritið segir frá "venjulegri" 5 manna fjölskyldu sem að eigin áliti er heldur blönk. Baðherbergið er of lítið, það vantar alltaf eitthvað og óánægja, pirringur og gremja grafa undan lífshamingjunni. Inn í þetta fléttast persónuleg saga hvers og eins og glíma hans við lífið og tilveruna. Einn daginn finnur fjölskyldufaðirinn lottómiða og á honum reynist vera stór vinningur og hýrnar þá heldur betur yfir mannskapnum. Eða hvað...?
Leiklist er frábært kennslutæki því í gegnum hana geta krakkar mátað sig inn í hvers kyns aðstæður og upplifað hluti án þess að þurfa að gera það í raunveruleikanum með tilheyrandi afleiðingum. Þetta hjálpar þeim að setja sig í spor annarra og eykur víðsýni, skilning og samúð með öðrum.
Sýningar eru í Félagslundi og miðaverð er sem hér segir:1,500 krónur fyrir fullorðna
1,000 krónur fyrir eldri borgara
1,000 krónur fyrir 6 - 16 ára
Frítt fyrir 6 ára og yngri