Stafrænt námsefni á neti

Skoðaðu verkefni unnin í Netskólanum

Opið verkefnasafn

 

Netskólinn er íslenskt náms- og kennslusamfélag sem fyrirtæki, stofnanir, skólar og einstaklingar geta nýtt sér. Netskólakerfið er hlaðið verkfærum fyrir kennara, umsjónarmenn og nemendur. Kennarar geta útbúið námskeið og sett inn eða útbúið margskonar námsefni. Innbyggt í kerfið eru leiðsagnarforrit til að útbúa t.d. skilaverkefni, hópverkefni, próf og spurningaleiki. Kennarar hafa að sjálfsögðu einnig aðgang að verkfærum eins og hugtakasafni, tenglasafni og umræðuþráðum.
Ef hópur notenda (nemenda eða kennara) vill vinna að ákveðnu viðfangsefni í kerfinu er hægt að útbúa vefsíður, sem er jafnvel hægt að læsa svo aðeins ákveðnir notendur geti skoðað þær eða sett inn efni. Hægt er að útbúa vefi eins og bekkjarvef, hópvef, verkefnavef og klúbbvef. Skólar geta á einfaldan hátt sett skólanámskrá inn í kerfið og tengt hana við námskeið.
Efniseiningar eru litlar vefeiningar sem er hægt að raða á síðu og aðlaga svo eins og hverjum hentar.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Netskólann skaltu endilega hafa samband með því að senda okkur tölvupóst.

Fréttasvæði
Ný námskeið í Netskólanum á vorönn
22.2.2012-Nýjungar

Nú hefur verið ákveðið að halda námskeið fyrir íslensk börn, sem eru búsett utan Íslands í Netskólanum. Við höfum fengið tvo ferska kennara til liðs við okkur til að sjá um námskeiðin. Eddu sem er búsett í Danmörku og kennir m.a. íslenskum börnum þar og Ásgerði, sem býr í Bandaríkjunum. Það verður boðið upp á tvö námskeið; Íslenska 1 verður léttara og hentar nemendum sem eru þokkalega læsir á íslensku og aðeins farnir að skrifa (8 - 10 ára). Íslenska 2 hentar nemendum sem eru vel læsir á íslensku, með nokkuð góða tjáningarfærni á íslensku og ráða nokkuð vel við að skrifa samfelldan texta á íslensku (10-12 ára). Til að hægt sé að skrá sig á námskeið þarf að stofna sig sem notanda, en bæði námskeiðin hefjast hlaupársdaginn 29. febrúar. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst og vera duglegir að benda öðrum sem áhuga kunna að hafa á námskeiðin. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna hér.


-Ókeypis forrit til að hreinsa til í tölvunni

Fréttasafn
RSS
 
Innskráning
Notandanafn:
Aðgangsorð:
 Nýr notandi  
Gleymt aðgangsorð