Umsjón: Árni Björgvinsson, Gígja Svavarsdóttir
, Þorbjörg Þorsteinsdóttir
Kennsluefni: Allt efni námskeiðsins verður sett upp á netnámskeiðinu. Hægt er að styðjast við nýjustu útgáfu kennarahandbókar að einhverju leyti
Forkröfur: Kennararéttindi í Netskólanum. Grunnfærni í tölvunotkun, skráavinnslu o.s.frv.
Verð: 9900 ISK
Námskeiðslýsing:
Námskeið fyrir kennara í Netskólanum.
Efnisþættir:
- Undirvefir í Netskólanum
- Heimasíðukerfið í Netskólanum
- Námskeið í Netskólanum
- Efnisgerð í Netskólanum
Notuð eru kennslumyndbönd og skýringartextar til að kynna viðfangsefnin. Allir nemendur skila inn nokkrum verkefnum á meðan námskeiðið stendur yfir og fá staðgóða þekkingu á hvernig námskeið eru byggð upp og efni er útbúið og lagt fyrir nemendur.
Yfirmarkmið:
- Nemendur munu læra að útbúa, skipuleggja og byggja upp netnámskeið.
- Nemendur öðlast færni í að útbúa mismunandi tegundir af námsefni í kerfinu.
- Nemendur munu læra að setja inn efni á undirvef og í skólanámskrá.
Nauðsynlegur búnaður og tæki: Tölva með hljóðkorti og hátölurum/heyrnatólum. Internet Explorer vafri útgáfa 5.5 eða nýrri. Media Player útgáfa 9 eða nýrri. Flash Player. Mælt er með að nota tölvu með Windows stýrikerfi.